Arnar Pétursson þjálfari íslenska kvennalandsliðsins hefur þurft að gera aðra breytingu á landsliðshópnum á tveimur dögum fyrir leikina sem framundan eru gegn Svartfjallalandi í undankeppni EM 2026. Ísland leikur fyrri leik sinn gegn Svartfjallalandi á morgun á Ásvöllum og hefst leikurinn klukkan 18:00. Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín leikmaður Fram hefur dregið sig úr hópnum vegna meiðsla og í hennar stað hefur línumaðurinn, Alexandra Líf Arnarsdóttir verið kölluð inn. Í gær dró Þórey Anna Ásgeirsdóttir sig úr landsliðshópnum þar sem hún ber barn undir belti og Sonja Lind Sigsteinsdóttir leikmaður Hauka var kölluð inn í hópinn í hennar stað. Ísland er án stiga í riðli sínum í undankeppninni eftir tvo leiki en Svartfjallaland er með fullt hús stiga. Liðin mætast síðan aftur ytra á sunnudaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.