Elvar Ásgeirs í úrvalsliði 22.umferðar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Elvar Ásgeirsson var valinn í úrvalslið 22. umferðar dönsku úrvalsdeildarinnar eftir frammistöðu sína í sigri Ribe Esbjerg á Íslendingaliðinu, TTH Holstebro fyrir helgi.

Ribe-Esbjerg vann leikinn sannfærandi með átta marka mun 39-31 en þjálfari TTH Holstebro er aðstoðarlandsliðsþjálfarinn Arnór Atlason og með liðinu leikur Jóhannes Berg Andrason.

Elvar gerði sér lítið fyrir og skoraði átta mörk í leiknum úr átta skotum og gaf fimm stoðsendingar. Með sigrinum feldi Ribe Esbjerg botnlið Grindsted. Ribe Esbjer er í 12.sæti deildarinnar með 16 stig en fjórar umferðir eru eftir af deildinni áður en farið verður í umspilsriðla um öruggt sæti í deildinni og átta lið úrslit deildarinnar.

Hér að neðan er hægt að sjá úrvalslið 22.umferðar í dönsku úrvalsdeildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top