Bjarki Már hafði betur gegn Janusi Daða
Ayman Aref / NurPhoto via AFP

Tvö efstu liðin í Ungverjalandi mættust í kvöld þegar Veszprém tók á móti Pick Szeged í 22.umferð ungversku úrvalsdeildarinnar. Ljóst var fyrir leikinn að með sigri Veszprém væru þeir gott sem búnir að gulltryggja sér deildarmeistaratitilinn en fimm stigum munaði á liðunum fyrir leikinn.

Og sú forysta jókst um tvö stig í kvöld því Veszprém vann sex marka sigur 30-24 eftir að hafa verið 11-14 undir í hálfleik. Veszprém reyndust sterkari aðilinn undir lok leiks og skoruðu sex af síðustu átta mörkum leiksins og breyttu stöðunni úr 24-22 í 30-23.

Það þarf mikið að ganga á til þess að One Veszprém missi toppsætið í ungversku úrvalsdeildinni í á þessari leiktíð.

Bjarki Már Elísson skoraði fimm mörk fyrir heimamenn á meðan Janus Daði Smárason skoraði tvö mörk fyrir Pick Szeged. Ivan Martinovic var markahæstur í liði Veszprém með sjö mörk en Marin Jelinic var markahæstur fyrir Pick Szeged með sex mörk.

Allt bendir til þess að liðin takist á í úrslitum um meistaratitilinn þegar úrslitakeppnin hefst síðar í vor en bæði lið eru einnig í baráttunni í Meistaradeildinni en 8-liða úrslitin fara fram síðar í þessum mánuði.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top