
Handknattleiksdeild Fram hefur gengið frá samningi við Díönu Guðjónsdóttur um að taka við starfi aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna næstu þrjú árin. Auk þess mun Díana taka við þjálfun U-liðs kvenna og 3. flokks kvenna. Díana kemur frá Haukum þar sem hún hefur verið um áraraðir. Meðal annars sem yfirþjálfari, í þjálfarateymi mfl kvk og með U-lið og 3. flokk kvenna. Díana og öll hennar fjölskylda er uppalin í Fram og spilaði Díana lengi með Fram á árum áður. Í tilkynningu frá Fram segir Gísli Freyr Valdórsson formaður Handknattleiksdeildar Fram eftirfarandi. "Við erum afar ánægð að fá Díönu til liðs við okkur. Hún býr yfir mikilli þekkingu á leiknum, sterkri leiðtogahæfni og hefur sýnt fram á getu til að þróa leikmenn og lið" segir Gísli Freyr Valdórsson formaður Fram í tilkynningu frá félaginu. "Fram er metnaðarfullt félag með skýra framtíðarsýn og það er mikill heiður að fá að vera hluti af því verkefni. Ég hlakka til að vinna með leikmönnum og þjálfarateymi félagsins og leggja mitt af mörkum til áframhaldandi árangurs" segir Díana Guðjónsdóttir jafnframt í tilkynningu frá Fram.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.