Þær Adela Eyrún Jóhannsdóttir, Hulda Hrönn Bragadóttir og Sylvía Bjarnadóttir hafa allar framlengt samninga sína til næstu þriggja ára. Þær Adela og Hulda Hrönn voru í stóru hlutverki hjá Selfossi í Olís-deild kvenna í vetur er liðið féll úr deildinni.
Adela Eyrún sem er skytta á nítjánda ári sem hefur leikið með meistaraflokki Selfoss síðustu tímabil og verið að fá stærra hlutverk með hverju árinu. Adela hefur einnig verið í U-20 ára landsliði Íslands í síðustu verkefnum. Það sama er að segja um Huldu Hrönn sem er jafn gömul og Adela og hefur einnig leikið með yngri landsliðum Íslands.
Sylvía er leikstjórnandi á sautjánda ári sem hefur verið að vinna sig inn í hlutverk í Selfoss liðinu í vetur.
,,Gríðarleg ánægja er innan deildarinnar að þessar þrjár öflugu stúlkur hafi ákveðið að taka slaginn með okkur næstu árin. Það verður mjög gaman að fylgjast með framþróun þeirra á næstunni í vínrauðu Selfoss treyjunni," segir í tilkynningunni frá Selfossi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.