Ásdís Halla framlengir við Aftureldingu

Ásdís Halla Helgadóttir er búin að framlengja samning sinn við Aftureldingu til 2028.

Ásdís sem er línumaður, er uppalin hjá Aftureldingu og þrátt fyrir að vera einungis 19 ára gömul þá er hún á sínu þriðju ára í meistaraflokki.

Ásdís Halla skoraði 13 mörk í 18 leikjum fyrir uppeldisfélagið sitt í vetur.

"Það er alltaf fagnaðarefni þegar að uppaldir leikmenn framlengja við félagið en við erum mjög glöð með að Ásdís ætli að taka þátt í þeirri uppbyggingu og vegferð sem er framundan" segir í tilkynningu frá Aftureldingu

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top