Katrín Tinna yfirgefur ÍR
Egill Bjarni Friðjónsson

Landsliðskonan, Katrín Tinna Jensdóttir yfirgefur herbúðir ÍR í sumar og heldur út í atvinnumennsku. Þetta herma áreiðanlegar heimildir Handkastsins.

Katrín Tinna hefur verið algjör lykilmaður í liði ÍR í Olís-deild kvenna síðustu tvö tímabil en hún gekk í raðir ÍR í janúar í fyrra eftir stutta dvöl í Svíþjóð hjá Skara þar áður lék hún með Volda í norsku B-deildinni.

Samkvæmt heimildum Handkastsins mun Katrín Tinna leika í Danmörku á næstu leiktíð sem verður því þriðja landið þar sem hún spilar handbolta utan Íslands.

Katrín Tinna sem verður 24 ára í sumar hefur einnig verið lykilmaður í íslenska kvennalandsliðinu sem vann sér þátttökurétt á Evrópumótinu sem fram fer í desember.

Um er að ræða stórt skarð sem ÍR þarf að fylla en Vaka Líf Kristinsdóttir leikmaður ÍR sleit krossband undir lok tímabilsins og verður frá keppni næstu mánuðina. ÍR féll úr leik gegn Fram í úrslitakeppninni en liðið endaði í 4.sæti Olís-deildarinnar á þessu tímabili.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top