Kveð Víking með hlýju og þakklæti efst í huga
Grótta

Nú á dögunum gekk línumaðurinn Arnbjörg Bertha Kristjánsdóttir til liðs við Gróttu frá Víking. Hún er uppalin í Fram en hafði verið í herbúðum Víkinga síðastliðin tvö ár.

Arnbjörg Bertha skoraði 31 mark í 19 leikjum í vetur fyrir Víking sem lenti í 3. sæti með 20 stig. 16 stigum á eftir Gróttu sem lenti í 2. sæti.

Handkastið fékk viðbrögð frá Arnbjörgu Berthu um þessi félagaskipti.

,,Ég kveð Víking með hlýju og þakklæti efst í huga. Nú tekur við nýr kafli og ég er virkilega spennt að ganga til liðs við Gróttu. Metnaðurinn í félaginu er mikill og ég hlakka til að vera hluti af næstu skrefum með öflugum hópi leikmanna auk þess sem þjálfarateymið er frábært" sagði Arnbjörg Bertha Kristjánsdóttir nýjasti leikmaður Gróttu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top