Þór tekur við Fjölni
Fjölnir

Þór Guðmundsson hefur samið við Fjölni um að taka við starfi aðalþjálfara meistaraflokks kvenna hjá félaginu til næstu tveggja ára. Samhliða því mun Þór einnig stýra 3. flokki kvenna hjá félaginu. Þetta segir í tilkynningu frá félaginu.

Þór tekur við liðinu af Gunnari Val Arasyni sem stýrt hefur liðinu undanfarin ár en Fjölnir endaði í 5.sæti Grill66-deildarinnar á þessu tímabili með 14 stig, sex stigum á eftir FH sem komst í umspil um laust sæti í Olís-deild kvenna.

Þór hefur áður þjálfað meistaraflokk hjá Víkingi og var aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Aftureldingu en þjálfaraferill hans hófst hjá Fram.

Í tilkynningunni frá Fjölni segir að eftir tveggja ára hlé frá þjálfun vegna stækkandi fjölskyldu er Þór nú tilbúinn að snúa aftur á hliðarlínuna.

„Fjölnir er spennandi félag sem hefur staðið sig vel í uppbyggingu undanfarin ár. Eftir að hafa tekið tvö ár í pásu frá þjálfun vegna stækkandi fjölskyldu var það ekki erfið ákvörðun að segja já við þessu verkefni. Það er mikill heiður að fá að vinna með ungum, efnilegum og metnaðarfullum hópi og ég hlakka til að gera mitt besta til að stuðla að áframhaldandi árangri og uppbyggingu," sagði Þór.

Meistaraflokksráð kvenna hjá Fjölni segist afar ánægt með ráðninguna.

,,Þekking og reynsla Þórs mun styrkja starf liðsins og tryggja áframhaldandi uppbyggingu. Við hlökkum til samstarfsins og þeirra jákvæðu áhrifa sem hann mun hafa á liðið,“ segir í yfirlýsingu ráðsins.

Að lokum er Gunnari Val þakkað fyrir gríðarlega gott og óeigingjarnt starf fyrir meistaraflokkinn í gegnum árin og óskar honum velfarnaðar í öðrum spennandi verkefnum fyrir deildina.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top