
Valskonur tóku á móti Fram í fyrsta leik þeirra í undanúrslitum Olís deildar kvenna á Hlíðarenda í kvöld. Fyrirfram var búist við þægilegum leik fyrir Valskonur en annað kom á daginn. Fram mættur sterkar til leiks og náðu strax fimm marka forskoti, 1-6, eftir um fimm mínútna leik. Valur reyndi að minnka muninn en Fram náði alltaf að auka forskotið aftur upp í fimm mörk. Staðan þegar liðin gengu til hálfleiks var, 12-16, Fram í vil. Síðari hálfleik þróaðist svipað og lok fyrri hálfleiks, Valur reyndi að minnka forskotið en Fram náði alltaf að svara þegar Valskonur komust nálægt þeim og héldu þeim í hæfilegri fjarlægð. Þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum var staðan 18-22 fyrir Fram og allt stefndi í óvæntan sigur gestanna. Valskonur náðu þá vopnum sínum og voru búnar að jafna leikinn í 22-22 þegar um sex mínútur voru eftir. Leikur Fram hrundi hreinlega á lokamínútum leiksins og fór það svo að Valur vann að lokum tveggja marka sigur, 26-24 en þær komust fyrst yfir í leiknum þegar um 90 sekúndur voru eftir af leiknum. Með sigrinum er Valur komnar í 1-0 í einvíginu og naga Frammarar sig eflaust í handarbökin að hafa ekki náð meiru út úr þessum leik. Lovísa Thompson var markahæst hjá Val í kvöld með 6 mörk en hjá Fram var Hulda Dagsdóttir markahæst með 8 mörk. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.