Ótrúlegur endasprettur Vals gegn Fram í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í gær tryggði þeim sigur 26-24 og eru Valur því komnar yfir í einvíginu 1-0. Fram mættu sterkar til leiks og náðu strax fimm marka forskoti, 1-6, eftir um fimm mínútna leik. Valur reyndi að minnka muninn en Fram náði alltaf að auka forskotið aftur upp í fimm mörk. Staðan þegar liðin gengu til hálfleiks var, 12-16, Fram í vil. Síðari hálfleik þróaðist svipað og lok fyrri hálfleiks, Valur reyndi að minnka forskotið en Fram náði alltaf að svara þegar Valskonur komust nálægt þeim og héldu þeim í hæfilegri fjarlægð. Þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum var staðan 18-22 fyrir Fram og allt stefndi í óvæntan sigur gestanna. Valskonur náðu þá vopnum sínum og voru búnar að jafna leikinn í 22-22 þegar um sex mínútur voru eftir. Leikur Fram hrundi hreinlega á lokamínútum leiksins og fór það svo að Valur vann að lokum tveggja marka sigur, 26-24 en þær komust fyrst yfir í leiknum þegar um 90 sekúndur voru eftir af leiknum. ,,Byrjunin á leiknum var alls ekki góð hjá okkur. Við vorum ólíkar sjálfum okkur í fyrri hálfleik í vörn og sókn. Þar af leiðandi fundum við ekki alveg okkar takt eins og við hefðum viljað gera frá upphafi. Við náðum hins vegar að vinna okkur betur inn í hlutina í seinni hálfleik með betri markvörslu, vörn og sókn," sagði Anton Rúnarsson þjálfari Vals í samtali við Handkastið. ,,Við náðum að þétta varnarleikinn og fá meira flæði í okkar sóknarleik einnig. Það var mikill karakter í liðinu að snúa þessu við þegar innan við 10 minutur voru eftir og landa sigri. Við þurfum hins vegar að fara vel yfir hlutina og skoða hvað betur mætti fara fyrir leikinn á laugardaginn," sagði Anton en liðin mætast í annað sinn á laugardaginn í Úlfarsárdal. Vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu. Haukar fóru til Vestmannaeyja í gær og unnu góðan útisigur á ÍBV og leiða því, í því einvígi 1-0.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.