Óvænt töp og stórir sigrar hjá Íslendingunum í Evrópu
Julien Kammerer / DPPI via AFP

Íslendingarnir voru í eldlínunni víða um Evrópu í gær en fyrri leikirnir í undanúrslitunum í Portúgal fóru fram þar sem tvö Íslendingalið voru í eldlínunni.

Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar í Sporting unnu Martimo á útivelli með þremur mörkum 40-37 en liðin mætast öðru sinni á laugardaginn. Orri Freyr skoraði fjögur mörk í leiknum en Francisco Costa var markahæstur í liði Sporting með 11 mörk.

Stiven Tobar Valencia og félagar hans í Benfica eru hinsvegar með bakið upp við vegg eftir tap gegn Águas Santas í hinni viðureigninni í undanúrslitunum. Águas Santas unnu leikinn með þremur mörkum 31-28 og standa vel að vígi fyrir seinni leikinn sem fer fram á heimavelli Benfica. Stiven skoraði fimm mörk fyrir Benfica í leiknum. Liðin mætast aftur á laugardaginn og þá skýrist hvaða lið mætast í úrslitum bikarkeppninnar í Portúgal.

Hannes Jón Jónsson og lærisveinar hans í Alpla Hard töpuðu dýrmætum stigum í toppbaráttunni í Austurríki í gær þegar liðið tapaði gegn Barnbach 30-28 í næst síðustu umferð deildarkeppninnar. Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Alpla Hard en Tryggvi Garðar Jónsson komst ekki á blað.

Barnbach var fyrir leikinn í 9.sæti deildarinnar með 18 stig en Alpla Hard er með 25 stig í 2.sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Voslauer sem er á toppi deildarinnar.

Viktor Gísli Hallgrímsson varði 14 skot og var mðe 54% markvörslu í sigri Barcelona gegn Cuenca. Leikurinn endaði 52-23 fyrir Barcelona. Barcelona hefur 16 stiga forskot á toppi deildarinnar þegar fimm umferðir eru eftir.

Að lokum tryggðu Kadetten Schaffhausen sér sæti í undanúrslit úrslitakeppninnar í Sviss með fjögurra marka sigri á Amicitia Zurich 31-27 á heimavelli. Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði níu mörk og var markahæstur en sjö marka hans komu af vítalínunni. Kadetten voru sjö mörkum yfir í hálfleik 18-11 en liðið náði mest níu marka forystu í stöðunni 21-12.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top