
Markmaðurinn Þórdís Idda Ólafsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild Víkings. Þórdís er fædd árið 2007 og kom upphaflega til Víkings í vetur á láni frá Fram þar sem hún er uppalin. En nú er ljóst að hún er búin að skipta alfarið yfir í Víking og er búin að binda sig næstu 2 árin í Safamýrinni. "Við erum virkilega ánægð með undirritunina og erum spennt að fylgjast með henni á komandi tímabilum" segir í tilkynningu frá Víking nú í dag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.