Í kvöld klukkan 19:00 er fyrsti leikur í úrslitaeinvígi umspils kvenna um Olís deildar sæti. Stjarnan og Grótta mætast í einvíginu og gæti þetta orðið afar áhugavert og spennandi einvígi. Grótta lenti í 2. sæti í Grill 66 deildinni í vetur með 36 stig í 21 leik. Stjarnan rétt svo bjargaði sér frá falli með 7 stig í Olís deildinni eftir frábæran endasprett. Liðið sem fyrr vinnur þrjá leiki hreppir Olís deildar sætið. Það er því mikið í húfi. Við heyrðum aðeins í Júlíusi Þóri Stefánssyni þjálfara Gróttu og fengum að heyra hvernig honum líst á einvígið sem framundan er. ,,Þetta einvígi leggst bara mjög vel í okkur. Það er góð stemmning í hópnum og mikil tilhlökkun að fara að byrja þetta. Við lítum á þetta sem forréttindi að vera fara spila til úrslita um laust sæti í Olís deildinni og verður virkilega gaman að máta sig við jafn öflugt lið og Stjarnan er. Við komum inn í þetta einvígi sem “litla” liðið og það hentar okkur fínt. Við gerum okkur fulla grein fyrir því að Stjarnan er með gífurlega gott og vel mannað lið, en við ætlum að selja okkur dýrt og sjá hverju það skilar okkur. Að lokum hvetjum við fólk til að mæta á völlinn og styðja við bakið á stelpunum," sagði Júlíus Þórir Stefánsson þjálfari Gróttu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.