
Heil umferð fór fram í þýsku B-deildinni í gærkvöldi þegar 28. umferð deildarinnar fór fram. Þrátt fyrir frábæra frammistöðu Elmars Erlingssonar fyrir Nordhorn-Lingen dugði það ekki liðinu til að vinna 2000 Coburg á útivelli. Elmar var markahæstur í liði Nordhorn-Lingen með átta mörk úr átta skotum og þá gaf hann sjö stoðsendingar. Coburg vann leikinn með fjórum mörkum 36-32 eftir að hafa verið einu marki undir í hálfleik 20-21. Nordhorn-Lingen er í 6. sæti deildarinnar með 34 stig eftir tapið í gær en sex umferðir eru eftir af deildinni. Coburg er með 30 stig í 8.sæti deildarinnar. Nordhorn hefur einungis unnið tvö af síðustu sjö leikjum sínum í deildinni. Tjörvi Týr Gíslason var ekki í leikmannahópi HC Oppenweiler/Backnang sem tapaði gegn Elbflorenz með fjórtán marka mun 42-28 en Elbflorenz var 21-12 yfir í hálfleik. Elbflorenz er í 3.sæti deildarinnar með 42 stig, fjórum stigum á eftir Balingen sem er í 2.sæti deildarinnar. Tjörvi Týr og félagar eru á botni deildarinnar með tvö stig og ekkert nema fall virðist bíða þeirra.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.