
Þór Guðmundsson var á dögunum ráðinn nýr þjálfari kvennaliðs Fjölnis. Þór þjálfaði á árum áður meistaraflokk kvenna hjá Víkingi um stutt skeið og var aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Aftureldingu um tíma þegar Guðmundur Helgi Pálsson þjálfaði liðið um árið en þjálfaraferill hans hófst hjá Fram þar sem hann þjálfaði lengi yngri flokka. Þór er að snúa aftur í þjálfun eftir tveggja ára hlé þar sem hann hefur verið að sinna stækkandi fjölskyldu og atvinnu en nú er hann tilbúinn að snúa aftur á hliðarlínuna. Við heyrðum aðeins í Þór, sem er búsettur upp á Skipaskaga, og fengum viðbrögð frá honum við nýja starfinu. "Fjölnir hringdi í mig í byrjun síðustu viku og gekk þetta allt nokkuð hratt fyrir sig. Þeir spurðu þig hvort ég hefði áhugann á að koma í klúbbinn og þjálfa meistaraflokk kvenna, ég sagði að ég þyrfti að tala við konuna og vinnuna áður en samtalið gæti farið lengra. Ég fann það strax að mig langaði að vinna með þessum leikmönnum og fólki í klúbbnum. Stefnan er að halda þeim góðu og efnilegum leikmönnum áfram, ásamt því að styrkja þær stöður sem þarf. En í grunninn er þetta flottur hópur og umgjörð til þess að starfa í" sagði nýráðinn þjálfari Fjölnis.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.