Stjarnan jafnaði metin í einvíginu
Eyjólfur Garðarsson

Grótta tók á móti Stjörnunni í öðrum leik í einvígi þeirra um sæti í Olís deildinni á næsta ári.

Heimakonur í Gróttu unnu fyrsta leik liðanna í Hekluhöllinni á fimmtudaginn og leiddu því 1-0 í einvíginu.

Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og skiptust liðin á því að hafa forskotið en voru heimakonur í Gróttu þó alltaf skrefinu á undan. Stjarnan var þó sterkari á síðustu mínútum fyrri hálfleiks og skoruðu fjögur síðustu mörkin og leiddu, 10-13 í hálfleik.

Grótta byrjaði síðari hálfleik betur og áttu Stjörnukonur erfitt með að finna markið á fyrstu mínútum síðari hálfleiks. Grótta náði þó aldrei að jafna leikinn og Stjarnan komst aftur í gírinn og byrjaði að auka forskotið jafnt og þétt aftur.

Stjarnan var svo sterkari á lokamínútum leiksins og vann að lokum fjögurra marka sigur, 22-26 og jafnaði þar með metin í einvígi liðanna en liðin mætast aftur í Garðabænum á fimmtudaginn.

Ída Margrét Stefánsdóttir og Þóra María Sigurjónsdóttir voru markahæstar hjá Gróttu í dag með 5 mörk en hjá Stjörnunni var Natasja Hammer allt í öllu eftir slakan fyrsta leik og skoraði 9 mörk.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top