Tímabilið einkenndist af miklum hæðum og miklum vonbrigðum
Sævar Jónasson

Grétar Áki Andersen var að ljúka sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari kvennaliðs ÍR í Olís-deild kvenna. Liðið féll úr leik í 6-liða úrslitum úrslitakeppninnar eftir tap gegn Fram 2-0 eftir að hafa endað í 4.sæti Olís-deildarinnar.

Grétar segir að tímabilið hafi verið skemmtilegt, einkennst af miklum hæðum og miklum vonbrigðum sem hann segir að sitji svolítið í honum ennþá.

,,En vinnum marga góða leiki og náðum allavega að taka skref fram frá því í fyrra í hlutum sem við töluðum um fyrir tímabil. Það voru vonbrigði að tapa 2-0 í 6-liða úrslitunum gegn Fram. Við ætluðum okkur í undanúrslit en það var bara ekki með okkur í ár og Fram spilaði mjög vel og mikið credit á þær."

Góður árangur í deildarkeppninni

ÍR tapaði bæði gegn Fram í Powerade-bikarnum og í úrslitakeppninni. Hefði Grétar vilja sleppa því að mæta þeim í úrslitakeppninni?

,,Nei það kom aldrei í hugann. Við ætluðum okkur að reyna enda með eins mörg stig og hægt var sem endaði þannig að við endum með 24 stig sem er góður árangur í deildarkeppni. Hins vegar einhvern vegin náðum við aldrei sýna okkar rétta andlit gegn Fram nema í svona 100 mínútur af 360 mínútum sem við spilum gegn þeim.

"

ÍR fór í HM pásuna svokölluðu í lok nóvember á toppi deildarinnar eftir frábæran sigur á Val á útivelli í lokaumferðinni fyrir heimsmeistaramótið. Árangur liðsins eftir heimsmeistaramótið var hinsvegar ekki sá sami og endaði liðið í 4.sæti.

,,Horfandi á þetta út frá leikjunum þá erum við að vinna mjög marga leiki fyrir áramót bara í “clutch” tíma en voru ekki að gera það sama eftir áramót. Við vinnum nokkra leiki fyrir áramót tæpt en töpum líka 3-4 leikjum með 1-2 mörkum eftir áramót sem við hefðum alveg geta unnið. Það sem við þurfum bara að finna er smá meiri stöðugleiki sem gerir þá að verkum að þetta gerist ekki," sagði Grétar sem segir að það verði einhverjar breytingar á liðinu frá þessu tímabili en ekki miklar. ÍR sé að skoða hverju þau geta bætt við sig.

Líst vel á að fjölga í 10 lið

Mikil umræða hefur verið innan handboltahreyfingarinnar að breyta mótafyrirkomulaginu í meistaraflokki kvenna - hvar stendur þú í þeim hugmyndum?

,,Mér líst mjög vel á að fjölga í 10 lið. Ég held það myndi gera það að verkum að gætum fjölgað liðum í Grill66-deildinni. Einnig myndum við þá geta mögulega prófað eitthvað nýtt með úrslitakeppnina gera eins og í Danmörku með og fara í tvo 4 liða riðla eða beint í 8-liða úrslit. Ég er á því að við þurfum að spila fleiri leiki sama hvernig því verður háttað."

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top