Vinstri hornamaðurinn Mattý Rós Birgisdóttir gekk nú á dögunum til liðs við Aftureldingu í Grill 66 deild kvenna eftir 4 ár hjá Víking. Áður var hún í HK þar sem hún er uppalin. Mattý Rós er 21 árs gömul og skoraði 24 mörk í 20 leikjum fyrir Víking í vetur. Við fengum viðbrögð frá Mattý um félagaskiptin. ,,Ég er mjög þakklát fyrir tímabilin mín hjá Víking og sérstaklega fyrir stelpurnar sem ég hef spilað með þar. En þegar að Afturelding hafði samband við mig fannst mér stefnan og markmiðin hjá liðinu mjög spennandi og metnaðurinn mikill. Það heillaði mig að fá tækifæri til að prófa eitthvað nýtt og ég er mjög spennt fyrir komandi tímabilum hjá Aftureldingu." Afturelding endaði í 7. sæti af 8 liðum í Grill 66 deildinni í vetur. Samkvæmt heimildum Handkastsins verður Guðmundur Helgi Pálsson kynntur sem nýr þjálfari liðsins á næstu dögum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.