

ÍBV og Haukar eigast við í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í kvöld í Vestmannaeyjum. Leikurinn hefst klukkan 18:30 en klukkutíma síðar mætast Valur og Fram. Staðan er jöfn í einvígi ÍBV og Hauka á meðan að Valur leiðir í einvíginu gegn Fram 2-0. Fréttamiðillinn, Tígull skellti sér á æfingu hjá ÍBV í vikunni og tók stutt spjall við Söndru Erlingsdóttur leikmann ÍBV. ,,Leikurinn leggst bara rosalega vel í okkur. Þetta er stór leikur og við erum allar mjög spenntar. Leikurinn hér heima skiptir öllum máli fyrir okkur. Það er allt öðruvísi að spila fyrir framan okkar fólk," sagði Sandra er ÍBV tapaði á heimavelli í fyrsta leiknum en vann síðan ótrúlegan endurkomusigur á Ásvöllum í síðasta leik. „Stuðningurinn skiptir gríðarlega miklu. Við getum ekki beðið eftir að sjá stúkuna fulla af stuðningsfólki – það gefur okkur svo mikið.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.