
ÍBV tekur á móti Haukum í þriðja leik einvígsins í undanúrslitum Íslandsmótsins í Vestmannaeyjum í kvöld klukkan 18:30. Staðan í einvíginu er jöfn 1-1 eftir tvö útisigra hingað til. Haukar unnu fyrri leikinn í Vestmannaeyjum og allt benti til þess að Haukar myndu líka vinna leik númer tvö. Farið var yfir leikinn á Ásvöllum í Handboltahöllinni í Sjónvarpi Símans í gær þar sem ÍBV náði ótrúlegum endurkomu sigri með tveimur mörkum frá Kristrúnu Ósk Hlynsdóttur á lokamínútum leiksins. ,,Haukar voru yfir með fimm mörkum þegar 13 mínútur voru eftir og virtust ætla ná 2-0 forystu í þessu einvígi. Hvað gerist svo?" spurði Hörður Magnússon annan af gest þáttarins, Rakel Dögg Bragadóttur. ,,Þær fara að klúðra og glutra niður forskotinu. Þær stíga á línu, missa boltann frá sér, ÍBV nær að skora í tómt markið og á örskömmum tíma nær ÍBV 4-0 kafla. Á þessum kafla fá Haukar klaufalegar 2 mínútur, þetta er bara reynsluleysi og reyndist þeim dýrkeyptar 2 mínútur. Allt í einu voru ÍBV sem voru ekki líklegar að vinna, komnar einu marki undir og mómentið komið til þeirra og þær farnar að trúa að ná þessum leik." Vignir Stefánsson bætir við að Haukar skoruðu tvö mörk á síðustu 15 mínútum leiksins og ÍBV breytti um vörn sem virtist taka bitið úr sókn Hauka. Umfjöllunina um sigur ÍBV gegn Haukum í Handboltahöllinni er hægt að sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.