Óvissa með þátttöku Hörpu Maríu – Sjáðu rauða spjaldið
Kristinn Steinn Traustason

Kvennalið Fram er með bakið upp við vegg þegar liðið mætir Val í N1-höllinni að Hlíðarenda í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í kvöld.

Hefst leikurinn klukkan 19:30 en Valur leiðir í einvíginu 2-0 og gætu sópað Fram úr úrslitakeppninni með sigri í kvöld á heimavelli.

Óvissa ríkir um þátttöku landsliðskonunnar, Hörpu Maríu Friðgeirsdóttur leikmanns Fram í leiknum í kvöld en hún meiddist illa á ökkla í síðasta leik liðanna seint í leiknum en Sara Lind Fróðadóttir leikmaður Vals fékk rautt spjald fyrir brotið sem virtist vera algjört óviljaverk. Sara Lind slapp við leikbann og verður gjaldgeng í leiknum í kvöld.

Það er hinsvegar alls ekki víst að Harpa María verði með Fram í kvöld en hún var sárkvalin eftir atvikið í leiknum á sunnudaginn. Atvikið átti sér stað á 52. mínútu leiksins og kom Harpa María ekkert meira við sögu í leiknum.

Harpa María hafði skorað eitt mark fyrir Fram í leiknum en í fyrsta leik liðanna var Harpa María næst markahæst í liði Fram með fimm mörk. Það yrði mikið áfall fyrir Fram ef hún getur ekki leikið með liðinu í leiknum í kvöld.

Atvikið má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top