Slæmur kafli Fram í fyrri hálfleik fór með leikinn
Baldur Þorgilsson

Eftir frábærar 50 mínútur Fram í fyrsta leik liðsins í undanúrslitaeinvíginu gegn Val þá sá liðið ekki til sólar í öðrum leik liðanna en Valur hefur unnið báða leiki liðanna til þessa og leiðir því í einvíginu 2-0. Valur vann annan leik liðanna með níu mörkum 18-27.

Liðin mætast í þriðja sinn í kvöld í Valsheimilinu klukkan 19:30 þar sem deildar- og bikarmeistarar Vals geta tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu.

Hörður Magnússon, Rakel Dögg Bragadóttir og Vignir Stefánsson fóru ítarlega yfir leikinn sem fram fór í Úlfarsárdal um helgina í Handboltahöllinni sem sýnd var í Sjónvarpi Símans á mánudagskvöldið.

Þar var farið yfir slæman kafla Fram í fyrri hálfleik, frábæran leik Hafdísar og góða innkomu Örnu Sifjar í marki Fram. Farið var yfir breiddina í liði Vals og innkomu Mariam Eradze og Elísu Elíasdóttur.

Hægt er að sjá umfjöllun Handboltahallarinnar um leikinn hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top