Grótta einum sigri frá Olís deildinni
Sævar Jónasson)

Stjarnan tók á móti Gróttu í þriðja leik liðanna í einvígum um sæti í Olís deild kvenna á næsta keppnistímabili.

Staðan í einvíginu var 1-1 en báðir leikirnir höfðu unnist á útivelli.

Grótta komu mjög sterkar til leiks í dag og náðu strax fimm marka forskoti í 1-6. Stjarnan átti í miklum vandræðum með að finna leið framhjá Andreu Gunnlaugsdóttur, markmanni Gróttu, í fyrri hálfleik. Stjarnan gerði nokkrar tilraunir til að minnka forskotið í fyrri hálfleik en Grótta náði alltaf að svara og leiddi með fimm mörkum í hálfleik, 11-16.

Stjarnan komu sterkar inn í síðari hálfleik og náðu að minnka muninn í eitt mark eftir einungis þrjár mínútur í síðari hálfleik, 17-18. Grótta náði þá aftur að slíta sig frá þeim og byggja upp gott forskot aftur. Stjarnan fór í 7 á 6 og refsaði Grótta þeim þegar tækifæri gafst og skoraði Andrea Gunnlaugsdóttir t.d. 3 mörk yfir allan völlinn.

Grótta seig hægt og rólega fram úr í restina og vann að lokum 9 marka sigur, 26-35 og eru einungis einum sigri frá því að tryggja sér sæti í Olís deild kvenna á næsta ári.

Vigdís Arna Hjartardóttir og Hanna Guðrún Hauksdóttir skoruðu 6 mörk fyrir Stjörnuna en hjá Gróttu var Ída Margrét Stefánsdóttir stórkostlega og skoraði 12 mörk í leiknum.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top