

Kristrún Ósk Hlynsdóttir leikmaður ÍBV hefur verið að skora heldur betur mikilvæg mörk í undanúrslitaeinvíginu á móti Haukum. Kristrún Ósk er 34 ára Eyjamær og tók fram skóna aftur í upphafi tímabils eftir rúmlega 5 ára pásu. Við heyrðum aðeins í Kristrúnu og fengum hana til að segja okkur meira frá endurkomunni á völlinn. ,,Ég byrjaði aftur bara í október, var eiginlega bara hætt eftir að ég átti yngri peyjan minn og var ekki búin að spila síðan árið 2021. Planið var nú samt ekki að spila, ætlaði bara að fá að æfa með tvisvar í viku. En svo bara voru meiðsli i hópnum og ég fór að fylla í skarðið og hef svo verið með síðan," sagði Kristrún Ósk sem segist vera þakklát fyrir að vera hluti af þessu liði. ,,Þetta lið er frábært. Ótrúlega skemmtileg blanda af yngri og eldri leikmönnum sem Maggi og Himmi hafa náð að stýra vel í vetur, allir leikmenn hafa hlutverk í liðinu. Svo er ekki leiðinlegt að hún mamma, Unnur Bóa sé hluti af teyminu og gott að geta nýtt reynsluna hennar. Úrslitakeppnin er skemmtilegasti parturinn af tímabilinu og einvígið við Hauka hefur verið mjög spennandi, það er geggjuð stemming i liðinu og allir tilbúnir að gefa allt í þessa leiki. Eyjastemmningin er náttúrulega ólýsanleg og finnum við mikinn stuðning frá öllum í bænum." Áfram hélt Kristrún og bætti við einu mikilvægu. ,,Sérstakt hrós á hana móður mína. Ef mamma (Unnur Sigmars) er ekki liðstjóri þá er hún pössunar pía þar sem ég er einstæð 2 barna móðir og oft mikið púsl að komast á æfingar og í leiki," sagði Kristrún en ÍBV leiðir í einvíginu gegn Haukum 2-1 en liðin mætast í fjórða sinn á laugardaginn á Ásvöllum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.