Haukar knúðu fram oddaleik
Sævar Jónasson)

Haukar tóku á móti ÍBV á Ásvöllum í dag í fjórða leik liðanna í undanúrslita einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn.

Heimakonur þurftu á sigri að halda annars væru þær farnar í sumarfrí þar sem ÍBV leiddi einvígið 2-1 fyrir leik dagsins.

Leikurinn var gífurlega jafn til að byrja með og náði ÍBV forskoti um miðbik fyrri hálfleiks en heimakonur voru snöggar að vinna það upp og komast sjálfar þrem mörkum yfir. Staðan í hálfleik var 11-10 og óhætt að segja að markverðir beggja liða voru að finna sig vel.

ÍBV byrjaði síðari hálfleikinn líkt og þann fyrri og komust fljótlega yfir en alveg eins og fyrri hálfleikur þróaðist þá náðu Haukar góðum kafla um miðbik hálfleiksins þar sem þær skoruðu fjögur mörk í röð og náðu að búa til forskot sem þær héldu allt til loka leiks.

Lokatölur urðu 26-23 Haukum í vil sem tryggðu sér með sigrinum oddaleik í einvíginu sem fram fer í Vestmannaeyjum á þriðjudaginn klukkan 18:00.

Sara Sif Helgadóttir átti stórkostlegan leik í marki Hauka í dag og varði 21 skot eða tæplega helming skotanna sem komu á hana í dag.

Rakel Oddný Guðmundsdóttir var markahæst í liði Hauka með 6 mörk og hjá ÍBV var Birna Berg Haraldsdóttir markahæst með 5 mörk.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top