
Nýliðarnir í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð, HK hafa að undanförnu verið að framlengja samninga við unga og efnilega leikmenn liðsins. Félagið tilkynnti í morgun að Ísabella Haraldsdóttir hafi skrifað undir samning við félagið. ,,Ísabella er ungur og efnilegur leikstjórnandi fædd árið 2009 sem getur bæði spilað á miðjunni og í skyttunni. Ísabella hefur verið lykilmaður í liði 3.flokks á yfirstandandi tímabili ásamt því lék hún sína fyrstu meistaraflokksleiki fyrir félagið. Ísabella hefur einnig verið viðloðin yngri landsliðin og bindur HK miklar vonir við hana í komandi framtíð," segir í tilkynningunni frá HK. Dagur Snær Steingrímsson tók nýverið við liði HK af Hilmari Guðlaugssyni sem stýrði HK til sigurs í Grill66-deild kvenna í vetur. HK er því komið aftur upp í deild þeirra bestu eftir nokkur ár í Grill66-deildinni. Samkvæmt heimildum Handkastsins mun HK vera með vensalið í Grill66-deildinni í vetur ásamt því að leika í Olís-deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.