
Bilun á rafmótor Herjólfs hafði heldur betur áhrif á ferðalag kvennaliðs Hauka sem mætir ÍBV í oddaleik undanúrslita Íslandsmótsins í Vestmannaeyjum í kvöld klukkan 18:00. Leikurinn verður sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Sigling Herjólfs frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja í gærkvöldi tók ekki nema sjö klukkustundir eða Herjólfur lagði af stað tæplega 20 mínútur í átta í gærkvöldi og var Herjólfur ekki kominn til Vestmannaeyja fyrr en hálf þrjú í nótt. Í frétt RÚV segir að vegna bilunarinnar og sjóalags hafi Herjólfur aðeins getað siglt á um fimm til sex sjómílna hraða. ,,Ekki er útlit fyrir að hægt verði að sigla Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi til Landeyjahafnar næstu daga, hún hefur verið lokuð mestallt árið vegna sandburðar. Á meðan hefur verið siglt til Þorlákshafnar sem er mun lengri leið," segir í frétt RÚV. Haukar hafa flogið í fyrstu tvo útileiki sína í einvíginu til þess en liðið fór með Herjólfi í gærkvöldi. Það verður áhugavert að sjá hvernig Haukaliðið mætir til leiks í leikinn í kvöld eftir þetta langa og stranga ferðalag en gera má ráð fyrir að leikmenn og starfslið Hauka hafi sofið eitthvað fram eftir í morgun. Rætt var um málið í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.