Ólýsanlegt að klára þetta á heimavelli með öllu þessu fólki
Sævar Jónasson

Magnús Stefánsson þjálfari kvennaliðs ÍBV var hálf orðlaus í viðtali við Sjónvarp Símans eftir ótrúlegan fimm marka sigur ÍBV gegn Haukum í tvíframlengdum oddaleik í undanúrslitum Íslandsmótsins.

Það var mikil dramatík lengst af í leiknum og úrslitin réðust ekki fyrr en í seinni hálfleik síðari framlengingarinnar.

,,Ólöf Maren kemur inn með frábærar markvörslur og síðan kemur Amalie aftur inn með frábærar markvörslur en það var sárt að missa hana út. Hrafnhildur Hanna kemur inn með sýna reynslu og setur tvö mikilvæg mörk. Ég veit ekki hvað ég á að tína til, húsið kláraði þetta í dag."

Amalie Fröland markvörður ÍBV meiddist í leiknum og virtust þau meiðsli vera alvarleg. Ólöf Maren steig hinsvegar upp og reyndist hetja ÍBV í leiknum.

,,Þetta hefur verið geðveikt ferðalag í vetur og heldur áfram. Það er ólýsanlegt að klára þetta hérna á heimavelli með öllu þessu fólki og stemningu. Það er ekki hægt að lýsa þessu."

En hvernig lýsir hann karakternum í sínu liði?

,,Þetta er hard work. Þetta eru algjörir dugnaðarforkar í þessu liði og ég er alveg tómur núna, ég veit ekki alveg hvað ég á að segja.”

Nú er ljóst að ÍBV mætir Val í úrslitum Íslandsmótsins. Hvernig metur hann það einvígi?

,,Nú þurfum við að fagna og njóta í kvöld og leyfa þessu að sync-a inn. Síðan hefst þetta á morgun hjá okkur þjálfarateyminu að skoða Valsliðið og stelpurnar þurfa að ná sér niður og endurheimta. Ég býst við öðru eins einvígi ef ég á að segja alveg eins og er, ég geri ráð fyrir stál í stál.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top