Stefán Arnarson þjálfari kvennaliðs Hauka var að vonum svekktur eftir tap sinna stelpna gegn ÍBV í oddaleik undanúrslita Íslandsmótsins sem fram fór í Vestmannaeyjum í kvöld. ÍBV hafði betur eftir tvíframlengdan leik en þetta var í annað sinn í þessu einvígi sem tvíframlengja þurfti leikinn. ÍBV reyndist sterkari aðilinn í seinni framlengingunni og unnu að lokum fimm marka sigur 36-31 þar sem liðið keyrði yfir lánlausa Haukastelpur síðustu mínútur leiksins þegar úrslitin voru gott sem ráðin. ,,Þetta hefur verið frábært einvígi fyrir handboltann og það er svekkjandi að tapa. Við höfum farið í úrslit tvö síðustu ár og ætluðum aftur núna. Þetta eru mikil vonbrigði en þessir leikir tapast oft á litlu hlutunum, dauðafærum, skynsemi, töpuðu boltum og fleira og það gerði það svolítið í dag," sagði Stefán í viðtali eftir leik við Sjónvarp Símans en leikurinn var sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans og var frábær skemmtun. En hvað fór úrskeiðis? ,,Þær fara í 5-1 og við höfum leist þessa vörn vel í síðustu leikjum en gerðum það illa. Við fórum svolítið mikið í solo og hættum að spila sem lið, það er alltaf hættulegt.” Hvað fannst honum erfiðast að díla við í leik ÍBV? ,,Sandra og Birna Berg eru ótrúlega skynsamar og síðan var fagnaðarefni að sjá Hrafnhildi Hönnu aftur, hún kom með 2-3 góð mörk. Mér fannst skynsemi þeirra lykillinn af þeirra sigri," sagði Stefán Arnarson að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.