
ÍBV er komið í úrslit Íslandsmótsins eftir sigur á Haukum í maraþonleik í Vestmannaeyjum í kvöld. Lokatölur 36-31 eftir 80 mínútna leik en mikil dramatík var nánast allan leikinn. ÍBV reyndist hinsvegar sterkari aðilinn í seinni framlengingunni og þá sérstaklega í seinni hálfleik en staðan var 30-30 eftir fyrri framlenginguna. ÍBV vann því seinni framlenginguna 6-1. Amalie Frøland markvörður ÍBV meiddist í upphafi síðari framlengingarinnar eftir að hún varði vítakast. Þau meiðsli litu ekki vel út og verður að teljast ólíklegt að hún verði leikfær þegar ÍBV mætir Val í úrslitaeinvíginu. Ólöf Maren Bjarnadóttir var reyndar stórkostleg í leiknum og var með 41% markvörslu en hún varði tvö dauðafæri undir lok leiks frá Emblu Steindórsdóttur og hraðarupphlaup frá Rakel Oddnýju. Það dugði hinsvegar ekki til að tryggja ÍBV sigurinn í venjulegum leiktíma því Haukar jöfnuðu úr hraðaupphlaupi undir lok leiks. Birna María Unnarsdóttir fékk hinsvegar síðasta færi leiksins en Sara Sif Helgadóttir varði frábærlega frá Birnu Maríu af línunni og tryggði Haukum þar með framlengingu. Jafnræði var með á liðunum í fyrri framlengingunni eftir að Haukar byrjuðu betur og var staðan jöfn 30-30 eftir fyrri framlenginguna. Í þeirri síðari voru ÍBV sterkari aðilinn eins og fyrr segir og unnu að lokum fimm marka sigur 36-31 en ÍBV spilaði 7 á 6 sóknarleik í seinni framlengingunni og hélt í sinn 5-1 varnarleik sem reyndist Haukum oft á tíðum erfiður. Sandra Erlingsdóttir var markahæst í liði ÍBV með 10 mörk og Agnes Lilja Styrmisdóttir skoraði sex. Hjá Haukum dró Embla Steindórsdóttir vagninn og skoraði átta mörk. Rakel Oddný Guðmundsdóttir kom næst með fimm mörk. Sara Sif Helgadóttir varði 18 skot í marki Hauka og var með 35% markvörslu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.