Alvarleg meiðsli Frøland – Tekur Vigdís Sigurðar skóna af hillunni?
Eyjólfur Garðarsson

ÍBV tryggði sér í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn á ótrúlegan hátt í gærkvöldi þegar liðið vann Hauka í oddaleik undanúrslitaeinvígsins eftir tvíframlengdan leik í Vestmannaeyjum. Lokatölur 36-31.

ÍBV liðið varð hinsvegar fyrir miklu áfalli í annarri framlengingu leiksins þegar annar af markvörðum liðsins, Amalie Frøland meiddist illa eftir að hafa varið vítakast. Magnús Stefánsson þjálfari ÍBV segir að það sé nokkuð ljóst að meiðslin eru alvarleg en nákvæm niðurstaða liggi ekki fyrir fyrr en eftir myndatöku sem hún fer í, í fyrramálið.

,,Aron Rafn Eðvarðsson og Haukastelpurnar voru frábærar í að leyfa Amalie að fljóta með sér í bæinn svo að hún kemst í myndatöku í fyrramálið. Þá vitum við nákvæmlega hver staðan er. Vel gert Haukar að taka hana með sér í bæinn," sagði Magnús í samtali við Handkastið.

,,Við erum að vonast til að þetta hafi verið smá tilfærsla á hnéskel en ekki áverki á krossband. Henni fannst hún finna einskonar smell þegar þetta er að gerast en það er ekki útilokað að það geti komið frá hnéskelinni ef hún smellur til hliðar."

Úrslitaeinvígið á milli Vals og ÍBV hefst á laugardaginn í Valsheimilinu og verður að teljast útilokað að Amalie Froland verði með ÍBV í þeim leik og jafnvel í einvíginu öllu. Ólöf Maren Bjarnadóttir hefur komið frábærlega inn í mark ÍBV í einvíginu gegn Haukum og átti frábæra innkomu í leiknum í gær og var með 41% markvörslu.

,,Ég geri ekki ráð fyrir henni í úrslitaeinvíginu, því miður. Næsti markmaður sem við eigum er á yngra ári í 4.flokki (fædd árið 2011) svo að ekki spilum við þeim. Sandra ætlar að heyra í mömmu sinni og athuga hvort að hún sé ekki klár í slaginn. Vigdís er hlaupandi hérna út um alla eyju svo að hún er í hörku standi," sagði Magnús og á þá við Vigdísi Sigurðardóttur, móðir Söndru sem verður 53 ára síðar á árinu.

Vigdís var á sínum tíma einn besti markvörður Íslands en lagði handboltaskóna á hilluna fyrir rúmlega 20 árum síðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top