Ætlum að sýna okkar rétta andlit og skilja allt eftir inni á vellinum
(Eyjólfur Garðarsson)

Það ræðst í kvöld hvort Stjarnan eða Grótta leika í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð en liðin mætast í oddaleik í úrslitaeinvígi umspils um sæti í Olís deild kvenna í kvöld klukkan 19:30 í Heklu-höllinni í Garðabæ.

Allir fjórir leikirnir hingað til hafa unnist á útivelli og gríðarlegar sveiflur verið í leikjunum og því er ómögulegt að spá fyrir um hvernig oddaleikurinn spilast í kvöld.

Við heyrðum aðeins í Katrínu Helgu Sigurbergsdóttur fyrirliða Gróttu og fengum hana aðeins til að segja okkur frá einvíginu hingað til og hvernig hún lítur á oddaleikinn í kvöld.

,,Einvígið er búið að vera hrikalega spennandi og skemmtilegt hingað til en hefur verið mjög sveiflukennt eins og úrslitin gefa til kynna. En við hlökkum mikið til að mæta í Garðabæinn í kvöld og sýna okkar rétta andlit og skilja allt eftir inni á vellinum. Að lokum vil ég hvetja allt Gróttufólk og aðra handboltaáhugamenn að fjölmenna og gera Stjörnuheimilið Gróttublátt eins og það hefur verið hingað til," sagði Katrín Helga Sigurbergsdóttir fyrirliða Gróttu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top