

Rakel Dórothea Ágústsdóttir hefur samið við Handknattleiksdeild Aftureldingar um að leika með liðinu næstu tvö árin. Rakel kemur í Mosfellsbæinn frá Stjörnunni, en hún hefur spilað með þeim síðan 2023. Rakel er skytta sem er uppalin hjá HK. Í vetur spilaði hún 21 leik með Stjörnunni og skoraði 5 mörk. Rakel var í öllum yngri landsliðum Íslands á árum áður. "Við erum gríðarlega stolt að því að Rakel hafi valið að semja við Aftureldingu og vilji taka þátt í þeirri uppbyggingu og vegferð sem er framundan" segir í tilkynningu frá Aftureldingu. Afturelding er sem stendur ennþá þjálfaralaust en leit stendur yfir að næsta þjálfara kvennaliðsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.