Stjórn HSÍ kaus að ÍBV myndi hafa 14 ára barn í hópnum
Eyjólfur Garðarsson

Úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitil kvenna hefst á morgun þegar Deildar- og bikarmeistarar Vals taka á móti ÍBV en um er að ræða tvö efstu liðin í Olís-deildinni í ár.

Leikurinn hefst klukkan 15:00 og fer fram í N1-höllinni að Hlíðarenda. Handkastið heyrði í Magnúsi Stefánssyni þjálfara ÍBV og spurði hann út í einvígið sem framundan er og stöðuna á leikmannahópi ÍBV en eins og greint var frá í gær þá varð lið ÍBV fyrir miklu áfalli í oddaleik sínum gegn Haukum á dögunum þegar markvörðurinn, Amalie Fröland sleit krossband seint í leiknum.

,,Fyrir utan Amalie Fröland að þá er staðan á hópnum frábær. Spennan og tilhlökkunin að hefja þetta úrslita einvígi er mikil. Mér líst vel á einvígið, stelpurnar okkar eru í “game mode” og klárar í verkefnið," sagði Magnús sem gerir ráð fyrir svipuðu einvígi og gegn Haukum í undanúrslitunum.

,,Valur er mjög svipað lið og Haukar. Sterkt varnarlið með leikmann hjá sér sem er frábær í einn á einn sóknarlega."

En hvernig ætlar ÍBV að fylla það skarð sem Amalie Fröland skilur eftir sig í markinu?

,,Við höfum hana Ólöfu Maren sem er líklega besti “vara”markmaður deildarinnar. Hún er búin að vera lykilleikmaður hjá okkur í úrslitakeppninni svo að við erum í fínum málum með hana. Stjórn hsí kaus innbyrðis um það hvort íbv ætti að hafa 14 ára barn í hópnum sem varamarkmann eða heimila okkur að fá markmann á “neyðar” lán. Hsí/stjórninni fannst það skynsamlegast/eðlilegast að barnið tæki þátt í einvíginu. Það er augljóslega ekki að fara að gerast, enda galin ákvörðun. Við finnum vonandi einhverja lausn á þessu," sagði Magnús að lokum í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top