Það þarf að huga að mörgu varðandi þeirra leik
Egill Bjarni Friðjónsson

Úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitil kvenna hefst á morgun þegar Valur tekur á móti ÍBV í fyrsta leik einvígsins. Leikurinn hefst klukkan 15:00 og fer fram í N1-höllinni að Hlíðarenda.

Anton Rúnarsson þjálfari Vals segir mikla tilhlökkun verða í leikmannahópi Vals fyrir einvíginu en liðið vann Fram 3-0 í undanúrslitum og hefur því þurft að bíða töluvert lengur eftir einvíginu heldur en ÍBV sem vann Hauka í oddaleik 3-2 í sínu undanúrslita einvígi.

,,Staðan er bara góð á hópnum og við mætum klárar til leiks. ÍBV er með frábært lið og hafa spilað vel í vetur. Þetta hafa verið hörkuleikir við þær í öllum leikjunum. Það má því búast við sama í þessu einvígi," sagði Anton Rúnarsson í samtali við Handkastið.

,,Þær eru með góða leikmenn í hverri stöðu og það þarf að huga að mörgu varðandi þeirra leik bæði varnarlega og sóknarlega," sagði Anton sem segir að það sé mikið hungur í leikmannahópi Vals að klára íslandsmeistaratitilinn en liðið er handhafar allra titla á Íslandi.

,,Þegar þú ert komin alla leið í úrslitaeinvígið um titilinn er það eina sem er í boði," sagði Anton að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top