
ÍBV tekur á móti Val í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Vestmannaeyjum í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og verður sýndur í Handboltapassanum. Valur leiðir í einvíginu 1-0 eftir sex marka sigur í fyrsta leiknum 39-33 en ÍBV leiddi í hálfleik í þeim leik 18-20. ÍBV náði mest sex marka forystu í seinni hálfleik í stöðunni 19-25 en þá snerist leikurinn hinsvegar alfarið við og vann Valur síðustu 25 mínútur leiksins með tólf mörkum, 20-8. ,,Tilfinningin fyrir leiknum í kvöld er mjög góð. Við spiluðum frábærar 50 mínútur í síðasta leik og við erum búnar að fara vel yfir síðasta leik." ,,Við vorum að tapa illa kaflanum í undirtölu. Við förum að klúðra og slökum á varnalega. Við náðum ekki að verja forskotið nóg og vel. Hlutir sem við erum búnar að fara vel yfir fyrir leikinn." Gerir þú ráð fyrir svipuðum leik í kvöld og í fyrsta leiknum? ,,Já, ég hugsa að þetta verði mjög jafnt einvígi með svipuðum leikjum. Leikirnir í vetur við Val hafa verið jafnir og skemmtilegir. Ég get ekki beðið eftir leiknum. Það er best í heimi að spila hér í eyjum fyrir framan allt fólkið okkar sem er með okkur í þessu," sagði Sandra Erlingsdóttir að lokum í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.