Samkvæmt heimildum Handkastsins verður Sebastian Alexandersson næsti þjálfari kvennaliðs Aftureldingar í Grill66-deildinni. Herma heimildir Handkastsins að Sebastian hafi nú þegar fundað með stjórn Aftureldingar og verði kynntur sem þjálfari liðsins á næstunni. Basti, eins og hann er alla jafna kallaður tekur við liðinu af Erni Inga Bjarkasyni og Andrési Gunnlaugssyni sem stýrðu liðinu í Grill66-deildinni í vetur en liðið endaði í næst neðsta sæti Grill66-deildarinnar á þessu tímabili með 13 stig, jafn mörg stig og Fram 2 sem var á botninum. Valur 2 og Fjölnir voru með 14 stig í 5. og 6.sæti deildarinnar. Basti þjálfaði kvennalið Víkings í sömu deild síðustu tvö tímabil. Handkastið hafði áður greint frá því að Guðmundur Helgi Pálsson yrði næsti þjálfari Aftureldingar en hann afþakkaði boðið skyndilega í kjölfar þess að Grétar Áki Andersen var rekinn sem þjálfari kvennaliðs ÍR og var Guðmundur strax orðaður við starfið hjá ÍR. Enn hefur hinsvegar ekkert verið tilkynnt í þeim málum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.