Er Sara Dögg á leið frá ÍR?
Sævar Jónasson

Samkvæmt heimildum Handkastsins gæti markahæsti leikmaður Olís-deildar kvenna á þessari leiktíð, Sara Dögg Hjaltadóttir verið á förum frá kvennaliði ÍR.

Kvennalið ÍR hefur mikið verið í umræðunni undanfarna daga eftir að Grétar Áki Andersen þjálfari liðsins hætti með kvennaliðið í síðustu viku.

Mismunandi skilaboð komu frá ÍR í kjölfarið hvort Grétar Áki hafi sagt upp störfum sjálfum eða hvort honum hafi verið sagt upp störfum en Handkastið greindi frá því í síðustu viku að leikmenn innan raða ÍR hafi kallað eftir breytingum á þjálfarateymi liðsins.

Nú ganga sögur um það að Sara Dögg Hjaltadóttir hafi haft samband við sitt fyrrum félag, Val og athugað áhuga þess að kaupa upp samning sinn hjá ÍR. Sara Dögg gekk í raðir ÍR á láni frá Val sumarið 2023 og var að ljúka sínu þriðja tímabili hjá félaginu.

Þá hefur Handkastið einnig heyrt af því að Fram hafi boðið tæplega eina milljón í Söru Dögg en því tilboði hafi verið hafnað.

Í vetur var hún einn allra besti leikmaður deildarinnar og vann sig inn í íslenska landsliðshópinn með frábærri frammistöðu. Sara Dögg var lykilmaður í sóknarleik ÍR sem átti gott tímabil framan af en árangur liðsins dalaði þegar leið á tímabilið.

Sara Dögg er á samning við ÍR til ársins 2027.

Handkastið vill árétta að einungis er um að ræða sögusagnir.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top