Haukur á eldi – Dýrt tap Rúnars á loka mínútunum
Kadir Caliskan / Middle East Images via AFP

Tveir leikir fóru fram í þýsku Bundesligunni í kvöld þegar 31.umferð deildarinnar hófst.

Göppingen vann eins marks sigur gegn Rúnari Sigtryggssyni og lærisveinum hans í HSG Wetzlar og þá fór Haukur Þrastarson á kostum í sex marka útisigri Rhein Neckar Löwen gegn TVB Stuttgart.

Göppingen vann endurkomusigur á heimavelli gegn HSG Wetzlar sem eru í mikilli fallbaráttu en Wetzlar var 27-29 yfir þegar rúmlega fjórar mínútur voru til leiksloka. Göppingen skoruðu hinsvegar fjögur næstu mörk og breyttu stöðunni í 31-29 en lokatölur urðu 31-30 Göppingen í vil.

Ludvig Jurmala var markahæstur í liði Göppingen með níu mörk en Tristan Kirschner var markahæstur í liði Wetzlar með sex mörk. Göppingen er áfram í 9.sæti deildarinnar en Wetzlar eru áfram í mikilli fallbaráttu, stigi fyrir ofan fallsætið með 15 stig í 16.sætinu þegar þrjár umferðir eru eftir.

Í Stuttgart var Haukur Þrastarson áfram á eldi í liði Rhein Neckar Löwen og skoraði tíu mörk og gaf fimm stoðsendingar í 26-32 sigri liðsins. Lenny Rubin var markahæstur í liði Stuttgart með sex mörk.

Rhein Neckar Löwen fór upp fyrir Melsungen með sigrinum og er nú í 7.sæti deildarinnar með 35 stig en Stuttgart er áfram í 12.sæti deildarinnar með 22 stig.

Úrslit kvöldsins:

Stuttgart - Rhein Neckar Löwen 26-32
Göppingen - Wetzlar 31-30

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top