
Akureyringurinn Auður Brynja Sölvadóttir hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hún er á 31. aldursári. Hún er alin upp á Brekkunni og lék með KA upp alla yngri flokkana. Svo spilaði hún með KA/Þór, fór síðan í Stjörnuna þegar hún flutti suður til Reykjavíkur og lék svo síðustu 6 tímabil með Víkingi.
Auður Brynja var sterkur varnarmaður og öflug skytta í Grillinu. Fór hún nokkrum sinnum yfir 100 mörk í deildinni án þess að fara á vítapunktinn.
En nú er komið að lokum hjá henni í boltanum og við fengum hana til að tjá sig aðeins um þessa ákvörðun sína.
"Ég er hætt södd og sæl. Eftir 6 ár með Víkingi hef ég ákveðið að huga að öðru en handbolta og er virkilega þakklát fyrir þann tíma sem ég hef spilað með Víking. Handboltinn hefur verið stór hluti af lífi mínu í mörg ár og hefur mótað mig bæði sem leikmann og manneskju. Á þessum árum hef ég kynnst frábærum liðsfélögum og safnað góðum minningum sem ég mun alltaf taka með mér, og ekki minnst eignast vináttu til lífstíðar sem ég verð ævinlega þakklát fyrir. Nú er komið að nýjum kafla og ég kveð handboltann með góðar minningar í farteskinu" sagði Auður Brynja Sölvadóttir.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.