Valgerður Elín Snorradóttir hefur gengið í raðir Stjörnuna í Olís-deild kvenna en hún gengur í raðir félagsins frá uppeldisfélagi sínu, Víking. Valgerður gerir þriggja ára samning við Stjörnuna. Valgerður var langmarkahæsti leikmaður Víkings í Grill66-deildinni í vetur með 132 mörk en hún er fædd árið 2008 og hefur leikið með liði Víkings í Grill66-deildinni undanfarin tímabil. ,,Valgerður hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands undanfarin ár. Hún er rétthent skytta með góða yfirsýn og mikinn skotkraft, en getur einnig leyst miðjustöðuna afar vel sem gefur liðinu aukna breidd. Við hjá Stjörnunni erum afar ánægð að Valgerður hafi valið að ganga til liðs við félagið og trúum því að hún eigi eftir að gera frábæra hluti fyrir okkur í bláu treyjunni næstu árin," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni. Valgerður var fyrr í dag valin í U18 ára landslið Íslands fyrir verkefni sumarsins. Stjarnan bjargaði sæti sínu í Olís-deildinni eftir sigur á Gróttu í oddaleik umspilsins í síðustu viku en liðið endaði í 7.sæti Olís-deildarinnar á tímabilinu. Valgerður er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Stjörnunar en áður hafði verið greint frá því að Trude Håkonsen hafi gengið í raðir félagsins frá KA/Þór.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.