Handknattleiksdeild ÍBV hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem það fordæmir alla mismunum í hvaða formi sem hún birtist og harmar orð sem voru látin falla af stuðningsmanni ÍBV gagnvart Hafdísi Renötudóttir í upphafi seinni hálfleiks í leik ÍBV og Vals í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn á dögunum. Handkastið greindi frá málinu fyrst allra fjölmiðla fyrr í dag. FORDÓMAFULL UMMÆLI STUÐNINGSMANNA ÍBV Í GARÐ HAFDÍSAR Í yfirlýsingunni frá ÍBV segir að tekið hafi verið á þessu máli innanbúðar eftir að forsvarsmenn handknattleiksdeildarinnar fengu veður af málinu og þessi tiltekni aðili settur í tímabundið bann. Alvarlegt atvik átti sér stað í leiknum þegar stuðningsmenn ÍBV létu niðrandi köll dynja á markverði Vals, Hafdís Renötudóttir. Atvikið sem um ræðir átti sér stað á 32. mínútu leiksins þegar heyra mátti stuðningsmenn ÍBV hrópa: „Hafdís fílar skæri“, sem vísar til kynlífs tveggja kvenna. Landsliðsmarkvörðurinn og leikmaður Vals, Hafdís Renötudóttir er samkynhneigð. Yfirlýsing frá Handknattleiksdeild ÍBV Handknattleiksdeild ÍBV fordæmir alla mismunum í hvaða formi sem hún birtist og harmar orð sem voru látin falla af stuðningsmanni ÍBV gagnvart Hafdísi Renötudóttur í leik 2 í úrslitum Olís deildar kvenna. Það skal tekið fram að þetta var einn aðili sem lét þessi orð falla en ekki stuðningsmannasveit ÍBV eða stuðningsmenn ÍBV yfir höfuð. Það hefur verið tekið á þessu máli innanbúðar eftir að forsvarsmenn handknattleiksdeildarinnar fengu veður af málinu og þessi tiltekni aðili settur í tímabundið bann. Fyrir hönd handknattleiksdeild ÍBV biðjum við Hafdísi Renötudóttur afsökunar og vonum að þetta muni ekki hafa meiri áhrif á þetta glæsilega einvígi sem hefur átt sér stað og stendur enn yfir. Fyrir hönd Handknattleiksdeildar ÍBV Garðar B. Sigurjónsson

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.