Handkastið hefur fengið upplýsingar um atvik sem handknattleiksdeild ÍBV hefur sent til málskotsnefndar HSÍ til umfjöllunar. Málið varðar atvik sem átti sér stað í seinni hálfleik í öðrum leik ÍBV og Vals í úrslitaeinvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. Valur vann leikinn og leiðir í einvíginu 2-0 og getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á morgun sigri liðið þriðja leik liðanna. Samkvæmt heimildum Handkastsins tengist málið leikmanni Vals, Mariam Eradze, sem talin er hafa gerst brotleg í umræddu atviki sem hægt er að sjá hér að neðan. Þar ýtti Mariam Eradze í bakið á Birnu Berg Haraldsdóttir á miðjum vellinum og endaði á því að Birna Berg féll á Elísu Elíasdóttur. ÍBV ákvað að vísa málinu til málskotsnefndar sambandsins. Handkastið hefur heyrt í Eyjamönnum sem hafa sett stórt spurningarmerki við það að í málskotsnefnd HSÍ eru tveir af þremur nefndarmönnum með sterk tengsl við Val. Annars vegar er það Alfreð Örn Finnsson, sem á dóttur í kvennaliði Vals, og hins vegar Júlíus Jónasson. Samkvæmt heimildum Handkastsins aðhafðist málskotsnefnd HSÍ ekkert í málinu eftir að það barst nefndinni. Eru þeir Eyjamenn sem Handkastið hefur heyrt í, virkilega ósáttir með ákvörðun málskotsnefndar. Magnús Stefánsson þjálfari ÍBV vildi ekki tjá sig um málið en staðfesti að atvikið hafði verið sent til málskotsnefndar HSÍ. Atvikið má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.