
69. ársþing HSÍ fer fram í Virkinu í kvöld en meðal mála sem kosið verður um er fjölgun liða í Olís-deild kvenna fyrir næsta tímabil úr átta liðum í tíu lið. Bæði ÍBV og Grótta lögðu fram breytingartillögu sem kosið verður um í kvöld. Rætt var um málið í nýjasta hlaðvarpsþætti Handkastsins þar sem Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfari karlaliðs Víkings og fyrrum þjálfari kvennaliða hér á Íslandi var gestur í Handkastinu. ,,Mér finnst þetta vera rökrétt og klárt. Ég hef engin rök heyrt á móti þessu neinsstaðar.Staðan er grafalvarleg kvennamegin, fækkun leikmanna, við verðum að bregðast við og gera eitthvað. Tónninn í hreyfingunni er þannig og ég hef ekki heyrt neinar mótbárur við þessu. Ég geri ekki ráð fyrir neinu öðru en að þetta fljúgi í gegn á þinginu," sagði Aðalsteinn Eyjólfsson meðal annars í Handkastinu í gær. Hér má sjá allt um ársþingið sem fer fram í dag og þær tillögur sem kosið verður um á þinginu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.