Gríðarlega svekktur – Vorum ólíkar sjálfum okkur
Egill Bjarni Friðjónsson

Valur mistókst að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli í dag þegar liðið tók á móti ÍBV. Valur leiddi í einvíginu 2-0 fyrir leikinn í dag en ÍBV hafði betur með átta mörkum 27-35.

Anton Rúnarsson þjálfari Vals var gríðarlega svekktur með leikinn en hann var í viðtali við Handkastið eftir leik.

,,Ég er gríðarlega svekktur. Þetta var ekki okkar besti leikur og við vorum ólíkar sjálfum okkur í seinni hálfleik. Ég er mjög svekktur."

Telur hann að Valsliðið hafi verið komið framúr sér vitandi af Íslandsmeistarabikarnum í húsinu?

,,Ég held ekki, auðvitað er mikið undir hjá báðum liðum og það hafa verið sveiflur í leikjunum hingað til, bæði varnar og sóknarlega. Þetta var jafn leikur í fyrri hálfleik en seinni hálfleikurinn er eitthvað sem við þurfum að skoða. Við missum markvörslu, vörn og sókn og þetta var einhvernveginn of mikið á þessum kafla."

,,Þær eru með hörkulið og þetta hafa verið hörkuleikir í öllum leikjunum gegn þeim í vetur. Þetta verður stál í stál.

En hvað þarf að bæta?

,,Við þurfum að fara yfir okkar leik eins og alltaf. Við erum með of mörg klikkuð skot og tæknimistökum og það var of langt á milli í vörninni og þær gengu svolítið á lagið," sagði Anton.

Valur fær annað tækifæri á þriðjudagskvöldið til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn en þá mætast liðin í fjórða sinn, í Vestamannaeyjum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top