ÍBV kjöldróg Valskonur á Hlíðarenda og tryggðu sér annan leik
Egill Bjarni Friðjónsson

Valur tók á móti ÍBV í þriðja leik liðanna í einvígi þeirra um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta á Hlíðarenda í dag. Staðan í einvíginu var 2-0 fyrir og gátu þær því tryggt sér titilinn með sigri.

Eyjakonur komu virkilega sterkar til leiks og voru greinilega ákveðnar að selja sig dýrt og ætluðu ekki að sjá Valskonur fagna á heimavelli. ÍBV náði strax fjögurra marka forystu og virtust Valskonur hreinlega ekki vera vaknaðar þegar leikurinn hóft. ÍBV spilaði virkilega sterkan varnarleik og tóku Lovísu Thompson leikmann Vals alveg út úr leiknum.

Líkt og í fyrsta leik liðanna þá kom Valur til baka og náði að jafna leikinn undir lok fyrri hálfleiks en ÍBV fór þó með eins marks forystu til búningsherbergja, 14-15.

Í síðari hálfleik var einungis eitt lið á vellinum og það var ÍBV. Valskonur fundu engin svör við sterkri vörn þeirra og þegar þær fundu leið var Ólöf Maren Bjarnadóttir í markinu hjá ÍBV og varði hvert skotið á fætur öðru.

ÍBV náði mest 12 marka forskoti og var sigurinn aldrei í hættu en eins og gefur að skilja slökuðu Eyjakonur aðeins á undir restina og unnu að lokum átta marka sigur, 27-35 og tryggðu sér annan heimaleik á þriðjudaginn í Vestmannaeyjum.

Elísa Elíasdóttir var markahæst í liði Valskvenna í dag með 6 mörk en hjá ÍBV var Sandra Erlingsdóttir markahæst með 9 mörk.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top