
Íslendingalið Alpla Hard í Austurríki eru dottnir út úr úrslitakeppninni í Austurríki eftir tap gegn Aon Fivers á heimavelli í oddaleik 8-liða úrslitanna. Um er að ræða gríðarlega óvænt úrslit en Alpla Hard endaði í 2.sæti deildarinnar á meðan Aon Fivers endaði í 7.sæti deildarinnar. Aon Fivers voru 14-15 yfir í hálfleik og unnu að lokum tveggja marka sigur 31-33. Alpla Hard hóf leikinn af miklum krafti og komust mest sex mörkum yfir í fyrri hálfleik í stöðunni 11-5. Þá komu hinsvegar fimm mörk í röð frá gestunum sem minnkuðu muninn í eitt mark í stöðunni 11-10. Aon Fivers komust síðan yfir í leiknum í fyrsta sinn í stöðunni 12-13 og leiddu í hálfleik 14-15. Alpla Hard voru að elta allan seinni hálfleikinn en gestirnir náðu mest þriggja marka forystu í seinni hálfleiknum. Alpla Hard náði aldrei að jafna metin og töpuðu að lokum með tveimur mörkum 31-33. Tumi Steinn Rúnarsson var markahæstur í liði Alpla Hard með níu mörk, þar af fjögur af vítalínunni. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði eitt mark í leiknum. Hannes Jón Jónsson þjálfari Alpla Hard hættir með liðið eftir tímabilið og var þetta því hans síðasti leikur sem þjálfari Alpla Hard. Liðið endaði eins og fyrr segir í 2.sæti deildarkeppninnar og tapaði í bikarúrslitum gegn Krems í lok apríl. Alpla Hard hafði farið í úrslitaeinvígið síðustu tvö tímabil en þurft að sætta sig við silfurverðlaun í bæði skiptin. Nú er liðið hinsvegar komið í sumarfrí en gert er ráð fyrir því að bæði Tumi Steinn Rúnarsson og Tryggvi Garðar Jónsson yfirgefi félagið í sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.