ÍBV sektað vegna ósæmilegrar og vítaverðar framkomu
Egill Bjarni Friðjónsson)

Handknattleiksdeild ÍBV hefur verið sektað um 150.000kr vegna framkomu áhorfenda í leik 2 í einvígi kvennaliðsins gegn Valskonum um Íslandsmeistaratitilinn.

Þetta er niðurstaða aganefndar vegna fordóma sem beindust gegn Hafdísi Renötudóttur, markverði Vals, í leik liðanna í Vestmannaeyjum í síðustu viku.

Hér að neðan má sjá brot úr úrskuði Aganefndar en allan dóminn með lesa hér neðst í fréttinni.

Aganefnd tekur fram að ummæli þau sem fjallað er um í þessu máli fela í sér gróft brot á grunngildum íþróttahreyfingarinnar. Að veitast að leikmanni með vísan til kynhneigðar hennar er atlaga að mannlegri reisn leikmannsins og andstætt öllu því sem íþróttir standa fyrir.

Almenn siðferðisvitund í nútíma þjóðfélagi gerir ríka kröfu um umburðarlyndi, virðingu og jafnrétti. Fordómar og hatursorðræða eiga hvorki heima á leikvelli, í áhorfendastúku né annars staðar í íslensku samfélagi. Slík hegðun verður ekki liðin undir neinum kringumstæðum. Íþróttavellir eiga að vera öruggur vettvangur fyrir alla þátttakendur, óháð kynhneigð þeirra eða öðrum persónuþáttum.

Það er mat aganefndar að framkoma áhorfanda eða áhorfenda á ábyrgð ÍBV sem hér er vikið að, teljist vítaverð og ósæmileg í skilningi 18. gr. reglugerðar um agamál, sbr. einnig 17. gr. sömu reglugerðar. Þá er framkoman ósmekkleg og særandi gagnvart þeim leikmanni Vals sem hún beindist að og til þess fallin að valda íþróttinni álitshnekki. Aðildarfélög bera ábyrgð á stuðningsmönnum sínum og ber að tryggja að framkoma þeirra sé innan þeirra marka sem lög og siðareglur HSÍ setja. Telur nefndin því rétt að gera ÍBV refsingu vegna málsins.

Úrskurð aganefndar má lesa hér

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top