Þetta partý heldur áfram og það er hrikalega gaman hjá okkur
Egill Bjarni Friðjónsson

ÍBV tekur á móti Val í fjórða leik úrslitaeinvígisins um Íslandsmeistaratitilinn í kvöld klukkan 18:00. Leikurinn verður sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans.

Eftir að hafa lent 2-0 undir í einvíginu vann ÍBV síðasta leik liðanna í Valsheimilinu á laugardaginn 27-35 og eyðilagði þar með sigurhátíðina í Valsheimilinu en karlalið Vals varð Íslandsmeistari tveimur dögum áður.

Magnús Stefánsson þjálfari ÍBV gerir ráð fyrir hörkuleik í kvöld.

,,Þetta verður vonandi bara áfram stál í stál. Það eru tvö frábær lið að eigast við svo að það er ekki við öðru að búast. Ég reikna með að fá fulla stúku í íþróttamiðstöðinni. Við höfum verið með langbestu mætinguna af stuðningsfólki af liðunum í deildinni. Þetta partý heldur áfram og það er hrikalega gaman hjá okkur," sagði Magnús sem býst við miklum og góðum stuðningi úr stúkunni í kvöld.

ÍBV breytti um varnarleik í síðasta leik og hélt Lovísu Thompson svolítið útúr sóknarleik Vals. Var það lausnin til að vinna Val?

,,Við þurftum að finna leið til að reyna að hægja á Lovísu, það gekk upp í þessum leik. Agnes var stórkostleg fyrir framan hjá okkur, það eru sennilega fáar í deildinni sem gera þetta jafn vel og hún Agnes. En hver leikur á sitt "eigið líf" og í kvöld er bara nýr leikur með nýjum áskorunum sem við komum til með að þurfa að glíma við. Ég er alveg viss um að Anton, Sissi og þeirra stúlkur séu komin með einhver svör við þessari vörn og við fáum einhverjar sóknarútfærslur hjá Val til að glíma við. Þetta er fjörið við það að vera í úrslitakeppninni, þetta eru krefjandi aðstæður sem reyna sannarlega mikið á," sagði Magnús sem staðfesti að allir leikmenn ÍBV sem léku síðasta leik eru klárar í leikinn í kvöld.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top